.


    

 

Efni finnst ekki.

[FORD]

 

Um fyrirtækið

  Um fyrirtækið


Fyrirtækið IB ehf var stofnað af Ingimar Baldvinssyni á Selfossi í júní 1996, en hann hafði áður unnið á því sviði frá árinu 1992. Frá upphafi hafa verkefni fyrirtækisins verið margþætt, en einkum hefur það þó sérhæft sig í innflutningi á nýjum sem notuðum bifreiðum, og fornbílum, auk allra vara- og aukahluta. Auk þess sér fyrirtækið um innflutning á vinnuvélum ýmiskonar svo og notuðum dísel- og bensínvélum. Engin takmörk eru þó á innflutningsmöguleikum. Bara hafa samband og við skoðum málið.

Meðal sérverkefna fyrirtækisins á liðnum árum hefur verið innflutningur sjúkrabíla fyrir Rauða Kross Íslands, slökkvibíla, björgunarsveitabíla, veghefla og krana. Sjúkrabílarnir voru keyptir eftir opið útboð innan EES, en þeim var síðan breytt hér á Íslandi af samstarfsaðilum fyrirtækisins, Bílaskjóli í Kópavogi, RadíóRaf ehf og Jeppasmiðjunni Ljónsstöðum, sem allir þykja fremstir á sínu sviði. Bílaskjól í Kópavogi sá þannig um útlitsbreytingar sjúkrabílanna og innréttingar þeirra, rafmagnsvinnan var unnin af RadíóRaf ehf og fjórhjólabreytingarnar af Jeppasmiðjunni Ljónsstöðum. Allir þessir samstarfsaðilar fyrirtækisins veita að sjálfsögðu fulla ábyrgð á vinnu sinni.

Fyrirtækið býðst ennfremur til þess að aðstoða við leitina að draumabílnum fyrir hvern þann, sem þess óskar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum síma og tölvupóst. Hafið endilega samband!

 

Hafðu samband
Sími 480 8080
Veffang www.ib.is
Netfang ib@ib.is

Starfsmenn

   
Ingimar Baldvinsson
Eigandi
ib@ib.is 
Magnús Vignir Árnason
Bifreiðasali
vignir@ib.is  

Staðsetning
Fossnesi A
800 Selfoss

Opnunartími
Opið á milli klukkan 09:00 og 18:00 alla virka daga.

Rekstraraðili
IB ehf. · Fossnesi A · IS800 Selfoss · kt. 5906963239 · vsknr. 52006
Sími 480 8080 · Veffang ib.is · Netfang ib@ib.is
Félagið er einkahlutafélag sem skráð er í hlutafélagaskrá.

IB ehf. · Fossnesi A · 800 Selfoss - Sími 480 8080 · www.ib.is · Netfang ib@ib.is - Hönnun og uppsetning - www.hestafrettir.is - www.aicon.is